Posted 1 year ago
2 Notes
Var aldrei búin að blogga eftir að stelpurnar komu. Ég veit ég er búin að vera löt. Ekki mikið nýtt í fréttum nema kanski það að ég var að fjárfesta í nýju farartæki! Get ekki beðið eftir að fá það!!! alveg get sko EKKI BEÐIÐ! Það verður ekkert smá gaman hjá okkur mömmu þegar hún kemur, við að krúsa hahaha :)

Eftir 10 daga verð ég krúsandi á þessu tryllitæki :)

Stelpurnar mættu ferskar á fimmtudagsmorguninn og við ákváðum að fara niðrá strönd í lunch. Án efa sá besti lunch sem ég hef farið í, í langan tíma. Við hlógum of mikið að við vorum allar farnar að gráta og fólk farið að stara haha.

Rúna fell in love.. Hún tók ábyggilega svona 300 myndir bara af prins! Enda er hann ekkert smá spenntur að sjá guðmóður sína í mílanó :)

Við höldum að það hafi verið sett eitthvað í Sangriuna þar sem við grenjuðum bókstaflega úr hlátri á CDLC.

Það var samt líka drukkið vatn :)

Nammmi …

Þau voru óaðskiljanleg!

Þessi er svo mikið sætust.

Hún fékk líka að halda á snúlla!
Dagurinn byrjaði vel og auðvitað var tekið það mexíkóst um kvöldið og fórum við hressar. Fengum okkur nokkra mojitoa einnig, enda eru þeir ómótstæðilegir!

Mættar ferskar :)

Sætastar mílanó skvísur

Blondínu gengið..

NACHOS!

Quesadia maðúr!
Kvöldið ætlaði að fara góða lengd en eftir matinn uppgötvaði ég að ég var búin að gleyma lyklunum inn í íbúðinni og vorum við því læstar úti. Ég hringdi í eigandann og hann var staddur í Kína, FRÁBÆRT! Þetta endaði samt vel þar sem bróðir hans, think god átti auka lykla.

Ég og Rúna að ná í lyklana á scoooter :)

Hittum þessa tvo villiketti síðan á Chupitos sem er skotstaður hér niður við strönd. Hægt að fá 500 skot á aðeins 2 evrur :)

Namm..

Ferðinni var síðan haldið á Jamboree sem er á Placa Reial. Það var nánast enginn þar inni haha nema einhverjir svartir hip hop gaurar en við létum það samt ekki stoppa okkur og tókum við dance battle hvað eftir öðru ..

Edu var góður í keppninni, held hann hafi unnið :)

Guðný var runner up number 2. Hún var alveg með þetta!

Rúna varð einnig frekar nett eftir að hafa dansað hipp hopp í 2 tíma

Ég eignaðist líka einn kæró sem dansaði einn á sviðinu allan tíman haha :)

Ég og Guðný fengum síðan 2 rósir gefnar af einhverjum sterakögglum.. þær eyðilögðust óvart!
Við vöknuðum gler þunnar á föstudeginum og ætluðum þvílíkt að fara á ströndina að shjæna okkur upp fyrir kvöldið og vera grillaðar (tanaðar) og sætar en ákváðum frekar að rölta niðrí bæ og kíkja aðeins í búðir. Vorum búnar að bjóða stelpunum, Herdísi, Sigrúnu og Kötlu í mat og Edu og Óskar ætluðu líka að koma við um kvöldið því við ætluðum öll saman á W.

Ákváðum að gera bara snarl.. Svo best! Endaði í ostaáti um nóttina haha.

Geggjað mikið fjör hjá okkur. Ég veit samt ekki alveg hvað er að gerast með hárið.

Sætar :)

Eitthvað fyndið :)

Memories!

Eitthvað spenntar fyrir kvöldinu.

Snúllan mín Herdís og ég hressar í BCN

Herdís og Katla sætar:)

ógó hress á W.

s-in þrjú :)

Eitthvað ógeðslegt skot.
Kvöldið var bara rétt að byrja þarna. Við enduðum síðan að gera eitt af því hellaðasta og skemmtilegasta sem ég hef gert..

Gegnið fyrir utan farið okkar :)

Frekar mikið gaman hjá okkur.

haha

Við fengum sko 2 kampavínsflöskur!

Skál, Salut, Salute!

Og þá byrjaði fjörið!

Þessi var einnig hress..

Og glöð!

hahaha

Óskar og Edu hressir!
Kvöldið var ómetanlegt og enduðum við síðan enn og aftur gler þunnar og nokkrum marblettum ríkari á laugardeginum. Fórum samt sem áður á ströndina en sú strandarferð var ekki skemmtileg. Eftir ógeðslegan mat og þegar við loksins komum á ströndina eftir að hafa labbað með 2 risateppi út um allt var orðið kallt haha

ferskleikinn af fara með okkur :)
Tókum rólegt laugardagskvöld þar sem stelpurnar áttu flug eldsnemma og enduðum bara í sushi með Edu og Óskari. Fórum á Kibuka sem er í Gracia, svo góður staður.

nammmmmm!!!

Sætar
Fórum síðan á Ryans þar sem Jorge vinur Edu’s vinnur þar og fengum við nokkra fría bjóra, sem er ekki verra :)

Hahah Guðný að reyna vera Larry the bird

Bugaðar eftir helgina hahaha

Edu :)

Rúna vann pílukeppnina :’)
Enduðum ekki lengi á Ryans þar sem við vorum allar bugaðar og geðveikt þreyttar og fórum bara snemma heim.

HAHA

Rúna lýsir ástandinu eins og var haha :)
Helgin var aðeins og góð og eftir að stelpurnar fóru felldi ég nokkur tár. Ekkert smá gott að fá þær og það var æðisleg helgi í alla staði. Núna get ég ekki beðið eftir að fara til Mílanó að heimsækja þær .. er alveg að telja niður dagana!!

Eftir ferðina erum við svo sannarlega þessir!
Ragnar elska kom síðan á mánudeginum, think god. Ekkert smá gott að fá hann aftur út. Enda erum við eins og lítið krúttlegt par hérna úti. Kúrum saman yfir mynd og borðum sushi og hvítt eins oft og við getum. Erum búin að vera dandalast mikið núna og afgreiða hluti. Skólinn hjá honum er að byrja á morgun svo ég vona að ég geti fengið að leika samt við hann.

Fórum í Forever 21! hef aldrei langað í svona mikið ….

Hjónin á leið í IKEA

Fengum okkur síðan kjötbollur. NAMMI!!!
Ég og Ragnar erum sko í átaki fyrir næstu átök sem eiga sér stað í Mílanó þannig við erum öll í kjúklinga salötum haha, buðum Lars í mat í vikunni :) svoooo gottt…

Salat sem er ómótstæðilegt!!!

Litlu hommarnir mínir.
Ég fór síðan með litla ungann minn í klyppingu og snirtingu í vikunni þar sem hann var allur flæktur hahaha en hann er svo mikið sætastur “mamma elskar þig svo mikið” hahahahha :)


Rúsínubollan!
Það sem er næst á dagskrá hér í Barcelona er að komast með allt um skólana sem ég er að fara sækja um. Vill vita hver er bestur og svona. Þannig ef einhver veit um eða þekkir einhvern sem lærði eða er að læra arkitekt hér í Barcelona má endilega láta hann eða hana hafa samband. Það væri mjög vel þegið :)
Ég get síðan ekki BEÐIÐ eftir kuldanum. Er komin með ógeð af þessum hita! Langar að nota fötin mín sem eru búin að hanga inn í fataskápnum mínum síðan í mars! Það er líka svo kósý hér um jólin. Ég vill kósý !

ohhhhh! Síðan eru bara 22 dagar þangað til mamma kemur. Það verður æði!
Þangað til næst
Andrea
Posted 1 year ago
2 Notes

Það er ekki mikið búið að gerast síðustu daga. Ég er bara á fullu í atvinnuviðtölum og redda hinum og þessum hlutum út um allan bæ. Veit ekki hvar ég væri án vespunnar minnar, þvílíkt sem ég elska hana.
Þessa helgi var hátíð hér í Barcelona sem hét, La Mercé. Verið að kveðja sumarið. Í byrjun sumars var hátið sem hét San Juan og það var verið að bjóða sumarið velkomið hér í Barcelona. Mér finnst eins og ég hafi verið að fagna byrjun sumarsins í seinustu viku, það er ótrúlegt hvað þetta er fljótt að líða. Ég tók nú ekki mikinn þátt í þessari hátíð þar sem veðrið var ekki það besta en ég frétti að flugeldasýningin í gær hafi víst verið þrusu flott, enda trúi ég ekki öðru.
Við krakkarnir fórum samt út að borða á Föstudaginn á uppáhalds staðinn minn, Rosa Raval.

En gaman :) Bestu jarðaberja mojitoarnir!!

Frank sagði okkur frá einhverjum geðveikum mexíkó bjór, sem lýsir sér nákvæmlega eins og svipurinn á Herdísi! haha

Sætar þessssar :)

Placa Real torgið sem við förum oft á var TROÐIÐ!
Ég átt einmitt eins árs flutningsafmæli 25 september. Ég á ekki til orðs yfir því hvað þetta ár var fljótt að líða. Að segja upphátt “ég er búin að búa í 1 ár í Barcelona” scares me! En þetta ár hefur samt án efa verið það besta hingað til. Ég hef þroskast mjög á þessu ári og ég gæti ekki hugsað mér að flytja úr þessari æðislegu borg, er alveg að elska lífið hérna, enda búin að koma mér rosalega vel fyrir.
Eitt af því sem er algjörlega uppáhaldið mitt hérna er Cup and Cake Barcelona. Þetta eru cupcakes from heaven. Ég gældi við okkur vinina um helgina og fór og keypti fyrir okkur. Myndirnar lýsa sér ..




Núna er ég samt búin að vera í pásu frá spænskuskólanum í 1 mánuð og það er komin tími til að taka bækurnar aftur upp að alvöru. Tíminn líður það hratt að ég þarf að fara step it up. Ég þarf að kunna reiprennandi spænsku fyrir næstkomandi skóla og það þarf að fara gera eitthvað í þessu. Ég fór áðan og keypti mér DVD myndir á útsölu svo ég geti horft á myndir sem ég þekki á spænsku. Ég er búin að reyna og reyna downloda myndum á spænku með enskum texta en finn hvergi hvar það er hægt. HELP ME!!!


Ég og Prins í spólutjilli!

Ég er einnig með heimatilbúið popp á heilanum. Ég á ekki örbylgjuofn þannig gamla góða aðferðin verður að virka og þótt ég segi nú sjálf frá, þá er heimatilbúið 100 sinnum betra.

Amma mín er náttúrulega snillingur og kom út með flatkökur og hangikjöt, ég er með það á heilanum einnig. Alveg besta sem ég veit um!
Er síðan að fá Rúnu og Guðný í heimsókn eftir 3 daga. EG ER AÐ DREPAST ÚR SPENNING. Við stelpurnar erum sko búnar að plana helgina frá a-ö það verður tryllt stemming á Gran víunni.

Myndin var tekin þegar þær komu að heimsækja okkur Guðrúnu í janúar. Ógleymanleg stemmning!!
Annars eru hlaupin að ganga vel fyrir þá áhugasama sem eru að fylgjast með. Ég er að byrja á 3 vikunni. Finn smá til í líkamanum en þetta fer að verða betra og betra.
Ælta ekki að hafa þetta mikið lengra. Kem með dúndur blogg eftir að stelpurnar voru hér:)
Eitt enn samt, ég er mikill sökker fyrir quote-um. Sá þessi um daginn og fannst þau skemmtileg.


Tók þessa í flugvélinni. Fannst þetta fyndið.
Posted 1 year ago
2 Notes
Sit hérna með maska eins og í gamla daga. Get ekki leynt því að ég sakna Nielsen minnar á þessum rigningardegi. Fór að skoða gamlar myndir og fékk smá tár í augun.

Frekar heit á þessari haha.

Ég og Guðrún fórum alltaf í H&M og keyptum allar tegundir af maska haha og það voru alltaf dekurkvöld og við settum á okkur maska og horfðum á góða mynd.

Hahaha nettastar.

Besti þynkudagurinn. Fórum á George Payne að horfá á Man.U leik og enduðum á því að elta dúfur á torginu hahaha svo góður þynkugalsi.

Smá memorial ..

Söknuður til þín snúllan mín.
Síðustu dagar hafa veirð rólegir en samt mikið að gera. Er búin að vera á fullu að leyta af vinnu og skoða skóla sem ég er að hugsa um að skipta yfir í. Þannig standa málin að ég er að skipta úr innanhús arkitektúr yfir í almennan arkitektúr. Ég var ekki að fýla IED og uppgötvaði að þótt að innanhús arkitektúr er skemmtilegur að arkitektúr henntar mér betur. Ég er með 4 skóla í huga og ætla fara skoða þá alla, þar sem ég er komin á vespu er auðveldari að ferðast á milli því þeir eru allir í sitthvorum hluta borgarinnar. Er einmitt að fara skoða einn á morgun sem heitir La Salle.
Fór aðeins á skrallið á fimmtudaginn með stelpunum, Herdísi, Sigrúnu og Kötlu .. Frank og Vera komu líka. Ég var kanski aðeins hressari en sumir þar sem ég var búin að fá mér nokkra ódýra og fría kokteila á uppáhalds matsölustaðnum mínum, sem er mexíkóskur, Rosa Raval. Jarðaberja Mojitoarnir þar eru to die for og aðeins 3.50 evrur. Síðan er maturinn ææææði og ódýr. Ég er búin að eignast nokkra vini á staðnum og það endar alltaf í aðeins meira en 1 mojito haha.

Sætust mín.

Sætu stelpur ..

Madness

Þessar eru krúttlur

Ef ég gæti sagt þér hvað var svona fyndið myndi ég gera það.

Hlýtur að hafa verið fyndið.
Lennti líka í frekar skemmtilegu í dag. Ég er svo svekkt að hafa ekki látið taka mynd af mér eftir atburðin. En ég var semsagt að fara hitta krakkana í lunch á Quiet man, sem er bar niðrí bæ. Það var leikur svo við ákváðum að panta mat þangað þar sem einn af vinum Franks á staðinn eða allavegana vinnur þar alla daga haha. Planið var að hafa BBQ í dag heima hjá Polinku, en það var spáð rigningu í dag svo það var bara ákveðið að panta kjúlla af æðislegum stað rétt hjá.
Ég og Prince fórum semsagt á vespuna í góðum gír. Ég sá að það var aðeins að grána úti þannig ég ákvað að fara í leggings sem ég hef ekki gert í angan tíma. Tók skyrtu með mér bara til vonar og vara ef skyldi rigna og lagði af stað. Hérna í Barcelona ef það rignir þá kemur ekki bara rigning það rignir án gríns eins og það sé hellt fötu yfir þig. Ef þú hefur ekki lennt í rigningunni hér gætiru ekki ýmindað þér hvernig þetta er. Rigningin kemur kanski í nokkrar mínútur en þessi rigning ákvað að vera í góðan klst í dag. Ég semsagt var með litla prins í veskinu mínu á vespunni á leiðnni niðrá Römblu. Við erum að tala um það að ég hef aldrei verið jafn blaut eftir rigningu, þegar ég loksins kom á barinn þá var ekki þurr blettur á mér. Það voru pollar eftir mig þegar ég labbaði og Prince var eins og lítil rækja hann var svo blautur. Til gamans þá tókum við skyrtuna sem ég var í og kreistum hana og hún fyllti heillt bjórglas hún var svo blaut, það var eins og ég hefði hoppað ofan í sundlaug.

Bíða eftir mat ..

Rufus.

Þessi er ein lítil rúsína.

Ég og litli snúllinn minn.

Ein gömul sem ég tók hér í BCN.
Annars er ekki mikið í fréttum. Er hrikalega stollt af hlaupaárangrinum mínum. Var með mesta kreiving í eitthvað junk fæði í gærkvöldi þar sem ég ákvað að taka því rólega og var kósy heima að horfá bíó, ákvað í staðin að fara út að hlaupa sem var þá 3 hlaupið mitt í vikunni og er ekkert smá stollt af mér. Ákvað síðan að taka eitt aukahlaup í dag og fór út að hlaupa þegar veðrið var orðið betra. Tók einn stuttan hring í kringum hverfið og ótrúlegt en satt þá fann ég þvílíkan mun bara á þessum 4 hlaupum hvað það var miklu auðveldara að hlaupa, ég ákvað síðan að gera eitt stórt skref sem ég hélt ég myndi aldrei gera í LÍFINU en ég skráði mig í maraþon hérna í BCN sem er 23 janúar og ætla að hlaupa 10 Km. Ég hélt eg myndi aldrei í lífinu gera þetta en ég er búin að skrá mig og get ekki beðið eftir því. Það er ekkert betra en að hafa eitthvað markmið og núna fann ég mitt fyrir utan spaið sem ég mun vinna og njóta eftir 6 vikur.

Thumps upp.. Þessi er að verða maraþon hlaupari!

Og og og veðmáls sigurverari!
Ég semsagt er bara á góðu róli hér. Er að leyta mér að vinnu, æfa mig í spænskunni þar sem námið mitt á næsta ári mun vera á spænsku, maraþonið mitt, er að fara fá gesti og bara njóta þess að búa í þessari æðislegu borg.
Þangað til næst
Andrea
1 Notes